06desember

sjúbbídúa

Þið verðið aðeins að hemja ykkur aðeins á að koma inná þessa síðu ég er ekki viss um að kerfið þoli mikið meira af gestum í einu á hana, það gæti hrunið. Alveg sko í gær 3 og einn af þeim var ég og í fyrradag var það einn og ég var einn af þeim... er ég kannski bara svona leiðinlegur??

En jæja ég ætla að smella hérna inn einni frásögn af minni eftirminnilegustu sturtuferð. En hún er þannig að ég ætlaði bara að fara að skola af mér skítinn og renni mér inná bað og kveiki á sturtunni og hoppa uppí hana og er með hana frekar heita. Þarna stend ég í dágóða stund og er bara að hugsa um hitt og þetta, ekkert merkilegt en síðan ákveð ég nú að henda smá sjampói í hausinn á mér og svona, síðan þegar ég er að fara að ná í sápuna, þá liggur hún við hliðina á blöndunartækinu og ég beygji mig til að fara að ná í hana en þá finn ég allt í einu stingandi sársauka í vininum. Mér að sjálfögðu bregður eins og meistarinn sjálfur hann Pétur, hoppa aftur fyrir mig og segji nokkur vel valinn orð sem ég ætla ekki að skrifa hér. Þessi ógeðslega sviðatilfinning ætlaði bara ekkert að hverfa og verður bara verri og verri með tímanum sem ég stend undir heitri bununni. Þá átta ég mig á því hvað gerðist, ég hafði beygt mig niður og þá hafði vinurinn lent á heita partinum af blöndunartækinu sem er nú bara mjög heitur. Og þarna stend ég brendur á miðstykkinu og veit bara ekkert hvað ég á að gera en hendi mér nú úr sturtunni tek þvottapoka og rennbleyti hann með ísköldu vatni og vef utan um hann og þá verður þetta strax betra.

alltaf er maður jafn heppinn...Óákveðinn

Og ég hef bara ein skilaboð til ykkar

DO NOT TRY THIS AT HOME!!!!!

Þetta var biðbjóðslega vont..


ætli ég hafi ekki bara lag bloggsins það stórglæsilega lag
Burn Burn með Lost Prophets
ég held að það eigi vel við

I'M outy!
ning(s)
Svalur

 

06. desember 2007 klukkan 02:08
Hilmar Henning Heimisson
5 athugasemdir
29nóvember

sjúddirallirey

Jæja(ég verð að segja þetta því ég varð að skoða það og allar fæslur(ekki blogg) sem ég hef gert byrja á jæja nema síðasta) ég verð nú að setja e-ð hér inn, þetta er ekkert eins auðvelt og þegar ég var með batman eða stiga, þar gat maður bara skorað á aðra til að koma með næstu færslu(ekki blogg) og kennt þeim um ef að hún var ekki nógu virk.

Maður var nú búinn að ætla sér að skella sér suður um helgina og hitta hana Elísu mína og var meira að segja búinn að redda mér GPS-tæki svo að maður gæti nú keyrt í borginni, þar sem ég rata ekki neitt í reykjavík, en þar sem að hún ákvað bara að skella sér norður um helgina hef ég bara ekkert að gera í borginni nema bara sytja á rassgatinu bora í nefið og gera ekki neitt. Þá þarf maður víst bara að finna sér e-ð annað að gera um helgina.

Ætli maður skelli sér ekki bara á eyrina eða e-ð svona til að hitta systur mína og litla snillinginn sem hét víst spiderman um daginn en það er nú önnur saga. Annars er ég að sjálfsögðu að tala um Kristófer nokkurn Daða Axfjörð

Er fólk fífl?

Ég hef oft pælt í því hvort fólk sé fífl, ég viðurkenni alveg að ég hef verið fífl og eflaust er það. Allavega fannst einhverjum það sem að gerði þessa könnun þarna sem ég minnist aðeins á hér neðar. Ég efast ekki um það að þú hafir einhvern tíma verið fífl. Allavega þá hefur maður gert ýmislegt fíflalegt, eins og að segja (missa útúr sér) að stelpur viti ekki neitt í beinni útsendingu í útvarpi og nýbúinn að segja fullt nafn á mér og hvaðan ég er og ýmislegt svona gaman. Þá leið mér eins og blautum ílla lyktandi lorti í fötu. Og efykkur langar að prófa að láta ykkur líða eins og blautum lorti í fötu þá skuluð þið endilega prófa þetta. Mæli samt ekki með því...

Allavega af þessari sögu að dæma þá hef ég komist að því að ég er fífl en hvað með þig?

Hér sit ég og er að hlusta á þetta glæsilega lag No One Would Riot For Less með snillingnum honum Bright Eyes.

Einnig mæli ég með því að llit tjekki á honum Jeff Dunham ég get horft á þessi myndbönd með honum aftur og aftur og alltaf hlæ ég jafn mikið



I'm outy
ning(s)Svalur
29. nóvember 2007 klukkan 01:33
Hilmar Henning Heimisson
1 athugasemd
28nóvember

einhver fyndinn?

einhver fyndinn hefur náð að komast inná þessa síðu og gert könnun sem mér fannst bara ekki neitt skemmtileg fínt að það kaus enginn í henni og er ég hress með það
28. nóvember 2007 klukkan 12:43
Hilmar Henning Heimisson
2 athugasemdir
27nóvember

hæ hó jibbí jey eða e-ð þannig

Ég stofnaði þessa bloggsíðu fyrir löööööööööngu síðan og ætlaði að vera svo duglegur að henda einhverju hingað inn en að sjálfsögðu eins og flest annað sem að maður ætlar sér að gera...

...þá gerðist það ekki..

En hér er ég að henda einu bloggi(hafiði spælt í því hvað þetta er ljótt orð. Verðum að finna e-ð betra) inn hér, og að sjálfsögðu ætla ég meðal annars að tala um þá viðburðaríkustu akureyrarferð sem ég hef nokkurn tíma átt síðan ég fékk mitt bílpróf í fyrsta og annað sinn. Ég ætla samt ekki að drepa ykkur úr leiðindum og segja hvað ég var að gera á akureyri. En ferðin þangað gekk bara fint en þegar ég var á leiðinni heim til húsavíkur þá er ég sem oftar að fara upp víkurskarðið á minni rollu, á undan mér er yaris glænýr, dökkblár og ahemm „flottur“ og á eftir mér er Rav4 og þarna marserar toyota fjölskyldan upp víkurskarðið eins og enginn sé morgundagurinn.

Þegar þessi fallegi flokkur er næstum kominn uppá víkurskarðið skyndilega bara beygjir þessi fallegi yaris útaf veginum bara beint fyrir framan nefið á mér. Tekur meira að segja með sér eitt stykki stiku á leiðinni útaf, ég keyri áfram og hreinlega bara fatta ekki hvað gerðist og þegar ég er kominn svona 100 metra áfram þá skyndilega fatta ég hvað gerðist ég snarbremsa og sný við býst við hinu versta að sjá hvað hefur gerst við þessa manneskju í þessum bíl (svona bílar fara bara í stöppu þegar þeir velta á þessum hraða). Þegar ég hef stoppað og lýt niður af veginum á bílinn stendur hann þarna á dekkjunum eins og ekkert hafði gerst. Ég og maðurinn í ravinum sem var á eftir mér förum niður að bílnum og sjáum þar eldri konu (hundgamla) sitja við stýrið og stjörf og gat ekki sleppt stýrinu. Við tölum e-ð við hana og spurjum hvort ekki sé í lagi með hana og svona þetta venjulega (þið þekkið þetta er það ekki?) en þessi kona bara segir ekki orð og lýtur ekki einu sinni á okkur, bara horfir beint áfram. Svo á endanum ákveður hún nú að stýga úr bílnum og labbar bara uppá veg án þess að segja orð eða lýta á okkur og sest bara inn í ravin í farþegasætið. Við erum þarna hálf skrítnir e-ð og hálf vitum ekket hvað við eigum að gera en ákváðum nú að reyna að koma þessum bíl uppá veginn aftur. Við bindum spotta í bílinn og ég sest við stýrið í yaris og sé að bíllinn er bara keyrður 550 km, bara glænýr bíll og við komum honum uppá veginn aftur skoðum bílinn aðeins og sjáum bara ekkert að honum nema smá rispu eftir stikuna. Ég ákveð þarna bara að halda áfram til húsavíkur en þá stekkur kellinginn útúr bílnum kallar á mig knúsar mig og segir takk. Lítið segi ég og keyri í burtu en hinn verður eftir.

 

Þarna fór ég að pæla af hverju ekki bara að setja svona reglur að þegar fólk er orðið 60 ára eða e-ð þannig þá bara að taka af þeim prófið eða allavega að láta tjekka á meira en bara sjóninni svona til að sjá alveg hvort að fólkið er heilt á geði því að ég held að ég geti ekki talið það hversu oft e-r gamall kall eða kerling hefur svínað á mig eins og ég veit ekki hvað. En vissulega eru það mikið um að ungt fólk sé að þessu líka en ég er ekki að tala um það núna.

 

Svo er það gelgju útgáfan af þessu bloggi

Vá OMG sko ég var að keyra áðan:D og ég bara vá bíllinn sem að var á undan mér bara keyrði útaf:S:S:S:S:S:S og svo bara hjálpuðum við konunni sem að var í þessum bíl bara uppá vegin og eg bara ekkert smá góður:D:D:D er það ekki??:D

Kjánalegt er það ekki??

 

Svo er best að setja lag bloggsins: Car Crash með Powerman 5000. Á það ekki vel við?


 

I'M OUTY

NING(S)Svalur

27. nóvember 2007 klukkan 00:23
Hilmar Henning Heimisson
13 athugasemdir

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Hilmar Henning Heimisson
  • Staður: húsavík
  • Kyn: kk
  • Atvinna: nemi, reyndar pizzaboy
  • Hjúskaparstaða: lausu
  • Um mig: Kallaður: yfirleitt Hilmar en stundum Ning og frændi á góðum stundum af vissum aðilum Aldur: 18 Áhugamál: Tónlist, bílar,bretti vandræðalegast: ef þú hlustaðir á Gettu betur í fyrra veistu það

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leikur dagsins

Gagnasafn